þjálfarar í Orkustöðinni
Ingibjörg Katrín
Ingibjörg er með B.Sc í íþróttafræðum og MPM master í verkefnastjórnun auk fjölda námskeiða innan heilsu og þjálfunar.
Ingibjörg er með yfir 20 ára reynslu og þekkingu á sviði styrktar-, þol-, snerpu- og liðleikaþjálfunar. Hún hefur unnið náið með sjúkraþjálfurum í þjálfun, endurhæfingu og sundleikfimi, bæði á Íslandi og í Danmörku, kennt hóptíma og frjálsar íþróttir m.a.
Ingibjörg býður upp á einka- og hópþjálfun í tækjasal auk þess að búa til sérsniðið æfingaprógram eftir þörfum hvers og eins.
Ef þú ert að glíma við verki/stoðkerfisvandamál, ert í endurhæfingu, streitu eða uppbyggingu eftir áföll þá hefur Ingibjörg góða reynslu á því sviði. Hún aðstoðar þig við að komast á sem öruggastan hátt að þínu markmiði, hvort sem það eru æfingar í sal eða þjálfun heima með eða án þjálfara.
Ingibjörg hefur sömuleiðis góða þekkingu í þjálfun á meðgöngu og eftir barnsburð og hefur unnið með sjúkraþjálfara á því sviði.
Ef þið vantar að koma mataræðinu á réttan kjöl aðstoðar Ingibjörg þig bæði með ráðgjöf og fræðslu heimavið og/eða búðarferð. Sérsniðin þjónusta að þörfum hvers og eins.
Til þess að fá nánari upplýsingar endilega hafðu samband við Ingibjörgu með því að senda henni tölvupóst ingibjorg1@gmail.com
Sigurbjörg Gunnarsdóttir
Sigurbjörg er einn af eigendum Orkustöðvarinnar og sér um reksturinn á tækjasalnum auk þess að bjóða upp á þjálfun í sal og fjarþjálfun í gegnum vandað app.
Hún sérhæfir sig í þjálfun einstaklinga með stoðkerfisvandamál og hefur m.a. starfað sem heilsuþjálfari á Reykjalundi og ráðgjafi og sérfræðingur hjá VIRK starfsendurhæfingarsjóði.
Sigurbjörg er menntaður íþróttafræðingur með B.sc. gráðu í sálfræði og MLM gráðu í forystu og stjórnun, auk þess að hafa farið á fjölmörg námskeið tengd hreyfingu, heilsu og þjálfun.
Ef þig vantar aðstoð við að komast af stað eftir langt hlé, ert óörugg/ur að byrja að hreyfa þig v. stoðkerfisvandamála, eða vilt fá æfingaprógramm sérsniðið að þér, þá getur þú heyrt í Sigurbjörgu með því að senda tölvupóst á sigurbjorg@orkustod.is
Sigríður Rósa Kristjánsdóttir – Sigga Kr.
Sigga býður upp á fjarþjálfun en hún býr núna á Spáni þar sem hún tekur m.a. á móti hópum í heilsuferðir. Auk þess býður Sigga upp á heilsumarkþjálfunarviðtöl í gegnum fjarfundabúnað.
Þeir sem eru í fjarþjálfun hjá Siggu fá þétt aðhald og sérsniðnar æfingar, auk annara upplýsinga sem eru aðgengilegar í vönduðu appi. Þar má m.a. sjá allar æfingar á stuttum myndböndum þar sem Sigga sýnir rétta tækni.
Sigga er menntaður einkaþjálfari og hefur tæplega þriggja áratuga langa reynslu af þjálfun. Hún átti og rak Perluna heilsurækt í mörg ár og þjálfaði marga Suðurnesjabúa á því tímabili 🙂 Sigga er menntaður markþjálfi og er núna í framhaldsnámi.
www.siggakr.is
Til þess að fá nánari upplýsingar þá getur þú haft samband við Siggu með því að senda henni tölvupóst: perlan.sigga@gmail.com eða í gegnum skilaboð á instagram.