**Ótímabundinn samningur er með engum binditíma og 2 mánaða uppsagnarfresti.
TÆkjasalur
Tækjasalur Orkustöðvarinnar er einstaklega notalegur æfingasalur þar sem vellíðan iðkenda er í fyrirrúmi. Salurinn er búinn nýjum, hágæða líkamsræktartækjum og búnaði. Í salnum er m.a. gott úrval þol- og þrektækja (hlaupabretti, fjölþjálfar, stigvél, viftu-hjól, sitjandi þrekhjól, endurhæfingagöngubretti og róðravél. Öflugir rekkar og stangir fyrir ólympískar- og kraftlyftingar og gott úrval er af ketilbjöllum, handlóðum, sippuböndum, æfingateygjum og öðrum æfingabúnaði. Auk þess er í salnum æfingastöð þar sem hægt er að gera yfir 20 æfingar í (t.d. fótpressa, niðurtog, brjóstpressa, kviðkreppam dýfur, fótlyftur, róður. Sjá nánar hér: https://www.youtube.com/watch?v=RZNCVADdwbw&t=1s
Stórir og miklir gluggar sem snúa í norður ýta undir æfingaupplifunina þar sem útsýnið er einstakt. Í tækjasal Orkustöðvarinnar er einungis óbein lýsing og hljóðvistin eins og best verður á kosið. Mikil áhersla var lögð á vellíðan í hönnunarferlinu og jákvæða æfingaupplifun iðkenda.
Opnunartími
Opið alla daga ársins
Virka daga: 05:50-22:30
Helgar: 07:00-22:30
Við tökum vel á móti þér
Björgvin Jónsson og Sigurbjörg Gunnarsdóttir eru eigendur Orkustöðvarinnar. Þau eru bæði Suðurnesjafólk, Björgvin úr Garðinum og Sigurbjörg Njarðvíkingur. Sigurbjörg er sálfræðimenntaður íþróttafræðingur og hefur hún víðtæka starfsreynslu á sviði ráðgjafar, kennslu, þjálfunar og starfsendurhæfingar. Hún er með fasta viðveru í tækjasalnum 2x í viku. Björgvin er laghentur tæknifræðingur og sér til þess að tækjabúnaðurinn sé ávallt í toppstandi.
Allir nýir iðkendur geta bókað tíma hjá Sigurbjörgu og fengið kennslu á tækin og leiðbeiningu með æfingaval (innifalið í korti). Til að bóka tíma vinsamlegast sendu póst á sigurbjorg@orkustod.is
Við bjóðum alla velkomna að koma og prófa hjá okkur tækjasalinn frítt (1x) án skuldbindinga. Endilega sendu okkur póst til að bóka tíma (sigurbjorg@orkustod.is) og við finnum tíma til að taka vel á móti þér 🙂
Æfingar vikunnar
Í hverri viku hannar þjálfari Orkustöðvarinnar 2 æfingar og myndir fylgja öllum æfingum til útskýringar. Einfalt og þægilegt prógramm sem byggir á blöndu af styrktar og þolæfingum, við flestra hæfi.
Öll tæki og búnaður eru frá Hreyfisport, Hafnargötu 35 Reykjanesbæ.
Myndir af aðstöðunni
Infrared sauna í Orkustöðinni